Minning: Ingimar Ágúst Guðmarsson

Það var auðvitað stæll á peyjanum þegar Ingimari bauð pabba kærustunnar sinnar í bíltúr á nýjum jeppa. Það þurfti aðeins að gefa karlinum inn og láta finna fyrir sér. Ingimar átti  nýjan svartan Mitsubishi og það var ekið suður í Klauf og mér leist vel á bílinn en enn betur á kærastann.

Ingimar Ágúst var sonur Guðmars í Akurey en æskuslóðir okkar lágu saman á Vestmannabrautinni og ég frá Stakkholti. Ingimar og Ása Hrönn dóttir okkar voru að finna nýjan takt í lífinu og við Sigga lögðum gott til svo byrjunin yrði góð undirstaða fyrir lífið. Ingimar var sjómaður en kom fljótlega í land og vann með okkur í fjölskyldufyrirtækinu. Hann var mér stoð og stytta. Verklaginn og duglegur peyji sem var sjálfstæður og var fljótt minn besti maður, traustur og heiðarlegur. Tæki og tól, viðgerðir og hverskonar reddingar léku í höndum hans. Tærnar á mér náðu aldrei í námunda við hælana hans í þessum efnum.

Ingimar var jarðbundin og nánast fyrirferðarlítill í daglegu lífi en fór sínu fram og leysti öll mál af lipurð og hógværð. Hann var hagur á flesta hluti og mér fannst allt leika í höndum hans og klárlega hefðu hæfileikar hans getað nýst víða. Ingimar var mjög hneigður af tækjum og tólum og þegar hann stofnaði með foreldrum sínum Kranabílaþjónustuna var hann kominn á sinn draumastað. Og það steinlá að hann þjónustaði fyrst og fremst bátaflotann, sá um flutning á veiðafærum, spólaði upp nótum og trollum, mældi og strekkti víra og kom hlerum og græjum í geymslu hvenær sólahringsins sem var.

Hann var einskonar lagerstjóri fyrir stóru uppsjávarskipin og skipstjórarnir hringdu í hann þegar þá vantaði eitthvað af veiðafærum. Þarna var reyndur sjómaður í lykilhlutverki á kranabílnum sínum.  Engin loðnuveiði í tvö ár tók sinn toll hjá litlu fyrirtæki en týndist í stóru myndinni en kom róti á huga dagsfarsprúðs manns. Ingimar var vakandi og sofandi yfir því að sinna starfi sínu og var alltaf klár í vinnu. Ég held að hann hafi alltaf verið í vinnugallanum og ekki fór hann í frí nema tilneyddur svo jafnvel tengdpabba hans fannst nóg um. Strákarnir hans og Ásu Hrannar voru líka tækjagæjar og Ragnar Orri löngu byrjaður að aðstoða pabba sinn í vinnunni og oft bættist Guðmar afi við. Samstilltir feðgar sem áttu svo margt sameiginlegt.

Á verkstæðinu þeirra héldu þeir bílum, krönum og blökkum gangandi og Ingimar löngum stundum einn í viðgerðum og viðhaldi. Færni hans og útsjónarsemi var viðbrugðið. En í svartasta skammdeginu þegar sólargangurinn er stystur lengdist gangan. Gönguleiðin var umlykt fjöllum og hann náði ekki að fanga eða grípa birtuna í stuttum sólargangi og löngum skuggum. Hann þurfti ekki nema einn geisla til að bjarga lífinu eða smá glætu svo hann birti til á ný, þá rekur hann tánna í brúnina og steypist í hyldýpið þar sem allt er svart, kalt og blautt.

Söknuðurinn er sár en minningin um góðan og ljúfan dreng sem var okkur svo kær lifir með okkur. Ingimar var faðir drengjanna okkar og eiginmaður Ásu Hrannar sem við munum standa vörð um í minningu Ingimars Ágústar.

Við vottum foreldrum Ingimars hjartans samúð.

 

Sigríður og Ásmundur Friðriksson.

Nýjustu fréttir

TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.