Andri Ólafsson, Birkir Hlynsson og ÍBV hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um starfslok þeirra sem þjálfarar meistaraflokksliðs ÍBV í Pepsi Max deild kvenna.

Tóku þeir við liðinu haustið 2019 og hafa stýrt því í eitt og hálf tímabil. ÍBV vill þakka þeim fyrir vel unnin störf í þágu félagsins, en þeir skilja við liðið í 6. sæti deildarinnar af persónulegum ástæðum.