Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefur verið ráðinn næsti þjàlfari knattspyrnuliðsins Vestra sem leikur í næst efstu deild. Þetta kemur fram í frétt á vef félagsins. Þar lýsir stjórn Vestra yfir mikilli ánægju með ráðninguna og telur að Gunnar sé einmitt sá karakter sem félaginu vantar og var í leit að.

Stjórn Vestra sendir þakkir til KFS fyrir að leyfa Gunnari að taka við þessu starfi. Gunnar Heiðar sem er fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu, er 39 ára og kemur frá Vestmannaeyjum.

Gunnar hefur spilað með Hannover í þýsku úrvalsdeildinni ásamt því að hafa spilað fyrir Halmstads, IFK Norrköping og BK Häcken í Svíþjóð. Einnig má nefna Vålerenga, Fredrikstad, Reading, Konyaspor og Esbjerg. Gunnar raðaði auðvitað mörkunum inn fyrir ÍBV í upphafi og enda ferils. Gunnar hefur verið að mennta sig í þjálfarafræðum. Á síðasta ári þjálfaði hann lið KFS í þriðju deildinni og náði eftirtektar verðum árangri.