Gunnar Heiðar Þorvaldsson, fyrrum leikmaður ÍBV og fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu segir það sorglegt að fylgjast með þeirri þróun sem hafi átt sér stað í kringum knattspyrnuna í Eyjum. Þetta kemur fram í viðtali við Gunnar í hlaðvarpinu “Chess after dark”, viðtalið í heild sinni má spila hér að neðan. DV birti fyrst frétt um málið.

Gunnar Heiðar flutti frá Vestmannaeyjum í sumar og segir að það hafi spilað stóra rullu í ákvörðun sinni að barna og unglingastarfið í kringum fótboltann sé ekki gott. Hann óttast þá vegferð sem félagið er á.

„Ég var að vona að þetta topic kæmi ekki, en ég hef gríðarlegar áhyggjur af knattspyrnunni í Eyjum í heild sinni. Það er einn af þessum factorum af hverju ég er að flytja í burtu,“ segir Gunnar Heiðar í hlaðvarpsþættinum Chess after dark.

Gunnar Heiðar tók við þjálfun Njarðvíkur í sumar og tókst að bjarga félaginu frá falli úr Lengjudeildini. Hann segist eiga efnilega stráka í fótbolta og þess vegna ákvað að flytja upp á land.

„Ég á stráka sem eru efnilegir í fótbolta, mér hefur fundist það síðustu fimm ár þetta vera á leið þar sem þetta er komið núna. Sögulega séð er þetta eitt lélegasta tímabil sem ÍBV hefur átt,“ segir Gunnar Heiðar.

Karlalið félagsins er í fallsæti fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar, kvennalið félagsins féll úr Bestu deildinni og KFS féll úr 3 deild karla.

„Kvennaliðið er fallið, KFS er fallið. Það sem ég horfi mikið á er barna og unglingastarfið í Eyjum, menn hafa verið sofandi á verðinum þarna.“

Gríðarleg stemming er í kringum handboltann í Eyjum en aðeins örfáar hræður virðast mæta á leiki í fótboltanum. „Undanfarin ár hefur myndast stemming í kringum handboltann, svo hefur verið barningur þarna tengdur fjármunum frá klúbbnum og hvernig á að skipta þessu. Ég held að allir séu sammála því að fótboltinn ætti að fá aðeins meira, það eru fleiri inn á vellinum. Það er bara rökrétt.“

„Ég hef verið í kringum þetta í mörg ár, þó ég stjórni engu þá reynir maður að koma með reynslu inn í þetta. Svo tók ég við KFS á sínum tíma og reyndi að hjálpa til, brúa bilið frá yngri flokka starfi upp í meistaraflokk. Mér fannst það takast vel á sínum tíma, mér fannst kominn grunnur til að halda þessu áfram.“

Hann segir þjálfun í yngri flokkum ábótavant. „Svo hefur mér fundist það síðustu ár, við höfum verið sofandi með barna og unglingastarfið. Ég held að þetta sé sögulega lélegt, sérstaklega strákaliðin. Þeir eru í neðstu sætunum í öllum flokkum sem er grátlegt. Það er ekki búið að sinna þeim. Það er búið að fækka þjálfurum þarna, það var ráðinn yfirþjálfari yngri flokka og hann endar á því að taka við tveimur flokkum því það fást ekki fleiri þjálfarar. Ég held að það hafi vantað sjö þjálfara í lok tímabils til að halda þessu gangandi.“

„Þetta er algjört þrot ef ég á að segja eins og er.“

Hann telur að ekki margir leikmenn muni skila sér upp í meistaraflokk á næstu árum en leggur til að félagið setji fjármuni í yngri flokka frekar en að eyða þeim í erlenda leikmenn.

„Við erum með marga Eyjamenn i liðinu en ég sé engan koma upp næstu 5-7 árin, þá er þetta ekki sjálfbært. Klúbbar eins og ÍBV, mér finnst að það eigi að leggja meiri peninga í barnastarfið. Setja peninga í innviði og fá góða þjálfara, að þurfa alltaf að borga mikla peninga í erlenda leikmenn. Einhverja Youtube leikmenn sem koma korter í mót, nýta þennan pening í innviði og yngri flokka. Að við séum að fá krakka upp, karla og kvennamegin. Þá koma fleiri á völlinn og fyrirtæki koma með pening í þetta.“

„Fótboltaforystan var á öðru máli en við flest og ég held að við séum á þessum stað út af því. Handboltinn, þeir gera þetta öðruvísi. Þar eru margir gamlir leikmenn í kringum liðið, í sjálfboðavinnu, í stjórn eða þjálfun. Þeir vita upp á hár hvað þarf að gera, þeir eru í kringum yngri flokka og starfið. Þetta er hringrás og heldur þeim gildum sem ÍBV á að standa fyrir. Í fótboltanum er kannski einn fyrrum leikmaður sem er í kringum þetta, það er sorglegt. Forystan hefur ýtt öðrum frá.“