KFS vann glæsilegan 2-1 sigur á Kormáki /Hvöt frá Blönduósi á Týsvelli í dag.

Víðir Þorvarðarson og Eyþór Orri Ómarsson skoruðu mörk KFS. Gestirnir misstu mann af velli með rautt spjald undir lok fyrri hálfleiks.

Róbert Aron Eysteinsson, leikmaður KFS, fékk sitt annað gula spjald undir lok leiks og var vísað af velli.

KFS situr í 5 sæti 3. deildar með 26 stig eftir 16 leiki. Næstu leikur er á Dalvík á laugardaginn kemur.