Fyrir framkvæmdafólk – Miðstöðin

Miðstöðin – Þú finnur hörðu pakkana hjá okkur segja strákarnir í Miðstöðinni. Úrvalið mikið og vönduð vara eru þeirra einkunarorð. (meira…)

Gott að borða í Eyjum – Gott er gott

Gott Í hádeginu bjóðum við upp á hádegisseðil , tilvalið fyrir samstarfsfélaga eða vini að koma saman. Á seðlinum finnur þú rétti sem einungis eru fáanlegir í hádeginu á frábæru verði og ekki verra að súpa fylgir frítt með.   Um helgar erum við með jólabrunch í hádeginu og  þriggja rétta jólaseðil á kvöldin.   […]

Góð þjónusta í Eyjum – N1 við Friðarhöfn

Starfsfólks N1 við Friðarhöfn er komið í mikið jólaskap enda töluvert síðan að jólavörur fóru að berast.  Helst ber þar að nefna sniðugar, ódýrar og sykurlausar gjafir í skóinn fyrir börnin en eftir að Stymmi Gísla byrjaði að vinna í N1 hefur samband okkar við jólasveinana aukist mikið.  Fóru jólasveinarnir fram á að auka úrvalið […]

Gott að borða í Eyjum – Næs á næs

NÆS mun halda áfram að bjóða upp á jólaseðil alveg framm að jólum á hverju kvöldi vikunnar. Við munum einnig vera með rosalega næs sælkerakörfu sem er tilvalinn gjöf eða bara til þess að njóta fyrir jólin. Hægt er að panta borð eða sælkerakörfu á naesrestaurant.is. Við þökkum fyrir viðskiptin á árinu og fyrir að […]

ÍBV treyja ódýrust í jólapakkann

Í frétt á vef Vísis hefur verið tekið saman hvaða fótboltatreyja er ódýrust í jólapakkann. Þar kemur fram að treyjur Breiðabliks og ÍBV eru ódýrastar á landinu á meðal Bestu-deildar félaga. Bæði félög eru í Nike og seljast fullorðinstreyjur liðanna á 6.495 krónur á meðan barnatreyjur eru þúsund krónum ódýrari, á 5.495 krónur, í H-verslun. […]

Jólatónleikar Kórs Landakirkju í kvöld

Árlegir jólatónleikar Kórs Landakirkju fara fram miðvikudagskvöldið 14. desember kl. 20:00. Öllu verður til tjaldað en tónleikarnir verða tvískiptir líkt og áður.  Fyrri hlutinn fer fram í safnaðarheimilinu og sá síðari í Landakirkju. Kitty Kovács stýrir kórnum og leikur á píanó og orgel og Gissur Páll Gissurarson syngur einsöng. Lofað er góðri skemmtun og e.t.v. má […]

ÍBV örugglega í átta liða úrslit

Eyjakonur eru komnar í átta liða úrslit í Coca Cola-bikarnum eftir 33:25 sigur á Þór/KA í Vestmannaeyjum í kvöld. Harpa Valey var marka­hæst hjá ÍBV með sjö mörk og Hrafnhildur Hanna skoraði sex. Marta stóð sig frábærlega í markinu. Önnur lið í átta liða úrslitum eru HK, Sel­foss, Haukar, Stjarnan, Vík­ingur, Fram og Valur. Mynd […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.