Á annað hundrað nemendur keppa í iðn- og verkgreinum í Laugardalshöll

Dagana 16. til 18. mars 2023 mun Verkiðn halda Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningu í Laugardalshöllinni í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina.

Keppt í 22 faggreinum
Á annað hundrað keppendur taka þátt í 22 faggreinum og takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku. Sigurvegarar í 11 greinum eiga kost á að taka þátt í Evrópumóti iðn- og verkgreina sem fer fram í Gdansk í Póllandi í september nk.

Greinarnar eru: Bakaraiðn, bifreiðasmíði, bílamálun, fataiðn, forritun, framreiðsla, grafísk miðlun, gull- og silfursmíði, hársnyrtiiðn, húsasmíði, kjötiðn, matreiðsla, málaraiðn, málmsuða, pípulagnir, rafeindavirkjun, rafvirkjun, skrúðgarðyrkja, snyrtifræði, vefþróun, veggfóðrun og dúkalögn og múraraiðn.

Námsframboð í 30 framhaldsskólum kynnt
Á Minni framtíð sýna einnig 11 iðn- og verkgreinar á mótssvæðinu og leyfa gestum jafnvel að prófa handtökin. Þá kynnir 30 framhaldsskóli námsframboð sitt.

Mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, opnar viðburðinn fimmtudaginn 16. mars kl. 9.00 og óska keppendum góðs gengis. Ásmundur Einar mun við þetta tilefni spreyta sig á Íslandsmóti áhugamanna í iðn- og verkgreinum.

Fjölskyldudagur á laugardag
Á laugardag verður haldinn fjölskyldudagur og öll boðin velkomin að kynna sér nám á framhaldsskólastigi. Team Spark kynnir rafmagnsbílinn sinn, Sirkus Íslands sýnir listir sínar og fjölmargar keppnis- og sýningargreinar leyfa gestum að prófa handtökin. Keppendur í kjötiðn halda uppboð á afurðum keppni sinnar greinar.

Fjölmiðlafólk er velkomið að fylgjast með þessum spennandi viðburði.

Allar nánari upplýsingar um Mína framtíð er að finna á vefsíðunni www.namogstorf.is

Nánari upplýsingar veita:

  • Skapta Örn Ólafsson, fjölmiðlafulltrúi Mín framtíð í síma 899-2200
  • Kristjana Guðbrandsdóttur, verkefnasstjóri Mín framtíð í síma 611-5910