ÍBV fær Fram í heimsókn í dag. Bæði lið eru með 20 stig sem stendur en ÍBV situr í botnsæti samkvæmt markatölu. Fyrsti leikur ÍBV var gegn Fylki síðastliðna helgi þar sem spennandi leikur endaði 2:2. Á 85 mínútu var staðan 2-1 fyrir ÍBV en Fylkir skoraði jöfnunarmarkið um mínútu síðar. Virkilega svekkjandi fyrir ÍBV sem þurfti á öllum stigunum að halda.

Hvetjum eyjamenn að fjölmenna á völlinn í dag og hvetja strákana áfram í baráttunni.

Flautað verður til leiks kl. 14:00 á Hásteinsvelli.