Innviðaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um að hækka útgjaldajöfnunarframlög sjóðsins vegna ársins 2023 um 750 milljónir króna. Áætlað útgjaldajöfnunarframlag skv. A-hluta framlaganna nemur því 13.950 m.kr.

Áætlað framlag vegna B-hluta útgjaldajöfnunarframlaga ársins nemur 575 m.kr. en í lok ársins verður úthlutað 175 m.kr. á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur á árinu 2023 umfram tekjur. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks úr dreifbýli.

Samtals nema því útgjaldajöfnunarframlög 14.750 m.kr. á árinu 2023.