ÍBV Íþróttafélag, knattspyrnudeild og Eiður Aron Sigurbjörnsson hafa komist að samkomulagi að ljúka sínu samstarfi og um leið rifta samningi hans við félagið. Þetta kemur í tilkynningu frá félaginu.

Þar kemur einnig fram að ÍBV Íþróttafélag þakkar Eið Aron fyrir samstarfið og framlagi hans til félagsins í gegnum tíðina og óskar honum velfarnaðar í framhaldinu.