Hluthafi samþykkti á aðalfundi Herjólfs ohf. þann 10. apríl sl., að tillögu stjórnar Herjólfs ohf., kauptilboð sem stjórnin og eigendur fasteignarinnar Básaskersbryggju 2, hluti jarðhæðar hafa undirritað. Um mikilvæga eign er að ræða á hafnarsvæði við Básaskersbryggju sem er þjónustusvæði Herjólfs.

Bæjarráð samþykti á fundi sínum kauptilboðið fyrir sitt leyti og vísar ákvörðuninni til staðfestingar í bæjarstjórn.