Nýbakaður matvælaráðherra ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, birtist í sýningarbási Vinnslustöðvarinnar á sjávarútvegssýningunni miklu í Barcelona og tók fólk tali. Á forsíðumyndinni eru með henni Albert Erluson, framkvæmdastjóri  Hólmaskers í Hafnarfirði til vinstri, og Björn Matthíasson, rekstrarstjóri VSV Seafood Iceland ehf.

Björn segir að sölu- og markaðsfólk VSV í öllum heimshornum hafi verið á sýningunni enda mikilvægur vettvangur til að sýna sig og sjá aðra:

„Við það að Leo Seafood í Eyjum og Hólmasker í Hafnarfirði urðu hluti af VSV-fjölskyldunni lá beint við að auka kynningu á ferskum og frosnum botnfiskafurðum VSV á sjávarútvegssýningum og í markaðsstarfinu yfirleitt.

Við sjáum líka teikn á lofti sem lofa góðu fyrir spurn eftir makríl- og síldarafurðum.

Sýningin í Barcelona var vel sótt og í heildina tekið var mikill áhugi á íslensku sjávarfangi vel merkjanlegur. Það eykur okkur bjartsýni.“

Sýningarnar í Barcelona eru í raun tvær, Seafood Expo Global og Seafood Processing Global, og þeim lauk í dag, 25. apríl.

Þetta er 30. samkoman af þessu tagi. Lengi vel var sýninginí Brussel en þetta er þriðja ár hennar í Barcelona. 

Umfangið nú var ekkert smotterí og hefur aldrei verið meira. Þarna komu við sögu 2.244 fyrirtæki/sýnendur frá 87 ríkjum í sýningarbásum á yfir 50.000 fermetra gólffleti! 

Mörg íslensk fyrirtæki voru þar á meðal og stofnuðu til nýrra viðskiptatengsla eða styrktu tengsl við viðskiptavini sem fyrir voru.

  • Nýi matvælaráðherrann, Bjarkey Olsen, er alþingismaður Vinstri-grænna í Norðausturkjördæmi frá 2013 og var þingflokksformaður frá 2017 til 2021. Hún var bæjarfulltrúi í Ólafsfirði frá 2006 til 2013, kenndi í Grunnskóla Ólafsfjarðar og starfaði sem náms- og starfsráðgjafi í Menntaskólanum á Tröllaskaga í Ólafsfirði þegar hún var kjörin alþingismaður.