Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna í handbolta, hefur valið 22 leikmenn sem koma saman til æfinga mánudaginn 21. september. Æfingar liðsins standa út þá viku. Andrea Jacobsen og Sandra Erlingsdóttir, leikmenn ÍBV, eru báðar í hópnum. Þá er Eyjakonan Díana Dögg Magnúsdóttir einnig í hópnum, en hún leikur með Blomberg-Lippe í Þýskalandi. Þetta verður […]
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn

Gagnaöflun fyrsta áfanga Eyjagangna er að mestu lokið og ítarleg úrvinnsla tekur nú við. Fyrstu athuganir gefa jákvæðar vísbendingar, að sögn Árna Sigfússonar, stjórnarformanns Eyjagangna. Hann leggur þó áherslu á að ótímabært sé að draga endanlegar ályktanir fyrr en allri greiningu er lokið. „Við lögðum af stað með skýra áætlun um markvissar og þrepaskiptar rannsóknir. […]
Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur

Tímabilið hjá karlaliði ÍBV í fótbolta hefur verið sveiflukennt. Liðið byrjaði illa en náði góðum kafla þegar leið á mótið og sýndi þá að það getur staðið í sterkustu liðum deildarinnar. Undanfarið hefur hins vegar gengið verið erfiðara og nú tekur við mikilvægur lokakafli þar sem stigin eru afar dýrmæt. ÍBV situr í 11. sæti […]
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd

Þjóðhátíð 2026 fór fram í blíðskaparveðri í ár og var boðið upp á glæsilega dagskrá í ár eins og vanalega. Ýmsar breytingar voru gerðar á hátíðinni, meðal annars á tímasetningu brennunnar, auk þess sem að nýr brekkusöngvari tók við, Ágúst Þór Árnason. Eyjafréttir ræddu við Ölmu Ingólfsdóttur frá þjóðhátíðarnefnd um hvernig hátíðin hafi til tekist […]
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja leggur til að gert verði ráð fyrir kostnaði við bætta aðstöðu og aðkomu við Sprönguna í fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2027. Sprangan hefur mikið menningar- og sögulegt gildi fyrir Vestmannaeyjar og er jafnframt vinsæll áfangastaður ferðamanna. Ábendingar hafa hins vegar borist um erfiða aðkomu að svæðinu, sérstaklega fyrir rútur, auk þess […]