Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
Efnisvinnslusvæðið við Sprönguna. Samkomulag um afnot af svæðinu er útrunnið og hefur verið óskað eftir að búnaður og efni verði fjarlægt. Mynd/Vestmannaeyjabær.

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja leggur til að gert verði ráð fyrir kostnaði við bætta aðstöðu og aðkomu við Sprönguna í fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 2027.

Sprangan hefur mikið menningar- og sögulegt gildi fyrir Vestmannaeyjar og er jafnframt vinsæll áfangastaður ferðamanna. Ábendingar hafa hins vegar borist um erfiða aðkomu að svæðinu, sérstaklega fyrir rútur, auk þess sem ásýnd þess hefur verið gagnrýnd.

Fyrirtækið Steini og Olli hafði samkomulag við Vestmannaeyjabæ um afnot af svæði við Sprönguna til efnisvinnslu. Samkomulagið er nú útrunnið og samkvæmt nýjum samningi bæjarins við aðila sem sinna efnisvinnslu í Vestmannaeyjum á starfsemin við Sprönguna að víkja af svæðinu.

Ráðið fól starfsmönnum bæjarins að ræða við forsvarsmenn Steina og Olla um að fjarlægja búnað og efni af svæðinu. Jafnframt verður horft til endurheimtar svæðisins og framtíðarfyrirkomulags aðkomunnar að Spröngunni.

Nýjustu fréttir

Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.