Framkvæmdir við innisundlaugina langt fram úr áætlun

Framkvæmdir og viðgerðir við innisundlaug Vestmannaeyjabæjar kostuðu samtals 110 milljónir króna á árunum 2025 og 2026. Upphaflega var áætlað að ráðast í mun afmarkaðra verk fyrir 25 milljónir króna, en umfang framkvæmdanna jókst verulega eftir að vinna hófst.  Þetta kemur fram í svörum Brynjars Ólafssonar, framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar, við fyrirspurn Eyjafrétta.  Upphaflega var […]

Börnin eru ekki vandamálið

Nýjustu PISA-niðurstöðurnar draga upp dökka mynd af stöðu íslenska skólakerfisins. Tryggvi Hjaltason, framkvæmdastjóri Andvara og Eyjamaður, segir í grein á Facebook enga ástæðu til að fegra stöðuna. Nær helmingur íslenskra 15 ára barna nær ekki grunnviðmiði í lestri og árangurinn hefur hrunið á síðasta áratug. Tryggvi bendir þó á að í niðurstöðunum leynist önnur og […]

Magnús Dagur Jónatansson gengur til liðs við ÍBV

Magnús Dagur Jónatansson er genginn til liðs við ÍBV í handbolta og mun leika með liðinu í Olís deild karla í vetur. Hann gerir tveggja ára samning. Handknattleiksdeild ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum. “Magnús Dagur er tvítugur og bráðefnilegur miðjumaður. Hann kemur til liðs við ÍBV frá uppeldisfélagi sínu, KA. Magnús Dagur hefur leikið […]

Kvennaliðið í góðri stöðu fyrir lokasprettinn

Kvennalið ÍBV hefur átt gott tímabil til þessa og situr í þriðja sæti Bestu deildar kvenna þegar 17 umferðum er lokið. Liðið hefur safnað 27 stigum og er vel í baráttunni í efri hluta deildarinnar. Þrátt fyrir að meiðsli og álag hafi sett strik í reikninginn á köflum telur Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari liðsins, að […]

HSU segir engan læknaskort í Vestmannaeyjum

hsu_inng_nyr

Heilbrigðisstofnun Suðurlands segir ekki vera læknaskort við starfsstöð stofnunarinnar í Vestmannaeyjum. Fimm læknar starfa þar að staðaldri og engin staða er ómönnuð. Þetta kemur fram í svari Díönu Óskarsdóttur, forstjóra HSU, við fyrirspurn Eyjafrétta um stöðu læknamönnunar í Eyjum. Nokkrar breytingar hafa orðið á læknahópnum undanfarið og tveir læknar, sem ráðnir voru til eins árs, […]

Fjárlagafrumvarpið 2027: Hvað er ætlað til Vestmannaeyja?

default

Vestmannaeyjar koma ekki fyrirferðarmikið við sögu í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Þar má þó finna áform um ríkisstyrkt flug til Eyja og framkvæmdir við Vestmannaeyjahöfn. Á hinn bóginn kemur ekki fram hvernig rekstur Herjólfs verður fjármagnaður eftir næstu áramót. Fjármála- og efnahagsráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið á blaðamannafundi í gær. Eyjafréttir hafa farið yfir frumvarpið og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.