Magnús Dagur Jónatansson gengur til liðs við ÍBV
Mynd/ÍBV

Magnús Dagur Jónatansson er genginn til liðs við ÍBV í handbolta og mun leika með liðinu í Olís deild karla í vetur. Hann gerir tveggja ára samning. Handknattleiksdeild ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum.

“Magnús Dagur er tvítugur og bráðefnilegur miðjumaður. Hann kemur til liðs við ÍBV frá uppeldisfélagi sínu, KA. Magnús Dagur hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Nú síðast lék hann á EM í Rúmeníu í sumar með U20 ára landsliði Íslands,” segir í tilkynningu handknattleiksdeildar.

Handknattleiksdeild ÍBV kveðst afar ánægð með að fá Magnús Dag til liðs við ÍBV og hlakki til samstarfsins.

Nýjustu fréttir

Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.