23 skemmtiferðaskip hafa bókað komu sína til Vestmannaeyja en fyrsta skipið kemur 24. maí. Af þessum 23 skipum er áætlað að fimm þeirra muni liggja á ytri höfninni vegna stærðar. Til samanburðar þá voru þrettán skipakomur skemmtiferðaskipa til Eyja síðasta sumar og samtals voru það níu skip.