2500 manns heimsækir Eyjuna í vikunni

Í dag byrja ungir knattspyrnumenn að streyma á Eyjuna til að taka þátt í 36. Orkumótinu. En mótið í ár er það stærsta frá upphafi með 112 liðum frá 39 félögum. Von er á 1150 keppendum, tæplega 300 þjálfurum/fararstjórum ásamt foreldrum og er því hægt að gera ráð fyrir því að hátt í 2500 manns heimsæki eyjuna í vikunni.

Mótið hefst á fimmtudagsmorgun kl. 8:20, en setningin verður að loknum fyrsta keppnisdegi og hefst hún með skrúðgöngu frá Barnaskólanum kl. 18:30, þar sem haldið verður á Týsvöll með Lúðrasveit Vestmannaeyja í fararbroddi.

Við minnum á að sýningin um sögu fótboltamótanna lýkur í Einarsstofu á sunnudag og á morgun fer í loftið þáttur hjá ÍBV hlaðvarpinu sem verður tileinkaður Orkumótinu, segir í tilkynningu frá ÍBV.

Við hvetjum Eyjamenn til að mæta á völlinn og fylgjast með ungum knattspyrnumönnum.

Munið að keyra varlega þessa daga!

Nýjustu fréttir

Fiskur fjórum sinnum í viku á Breka VE
Styrktarsjóður Landakirkju veitir aðstoð fyrir jólin
Fjölgun brota endurspegli aukið ofbeldi
Eyjakonur mæta Stjörnunni í bikarslag í kvöld
Heimir og Írar fara í umspil í Þjóðadeildinni
Átján framúrskarandi fyrirtæki í Eyjum
Bærinn semur við kaupmenn um jólagjafakort
Fjarvarmi í Eyjum hækkaði um 4,81% í nóvember
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.