30 þúsund tonn komin á land

Sighvatur VE kom inn á þriðjudagskvöld með 600 tonn sem fengust á Selvogsbanka. Klárað var að landa 500 tonnum úr Kap VE aðfaranótt miðvikudags og þá hófst löndum úr Sighvati og aflinn úr báðum skipunum fór í frystingu.

Guðni Ingvar Guðnason, útgerðarstjóri Vinnslustöðvarinnar sagði á miðvikudagsmorgun að loðnan væri nú vestan við Eyjar en skipin hafa leitað vestur undir Reykjanes til að vera í skjóli enda bræla á miðum. Stefán Friðriksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, sagði að þar á bæ væri búið að taka á móti 13.000 tonnum af loðnu á vertíðinni og u.þ.b. 3000 tonn hefðu verið fryst á Japans- og Rússlandsmarkað. Áætlað var að hefja hrognafrystingu á fimmtudag.

Hrognataka var að hefjast hjá Ísfélagi á miðvikudag en þá var verið að landa 1200 tonnum úr Sigurði VE. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri, sagði að skip Ísfélagsins væru búin að veiða 30.000 þúsund tonn af loðnu og 15.000 tonn væru komin á land í Eyjum.

Ísfélagið er með sex skip við loðnuveiðarnar. Björn Brimar, vinnslustjóri Ísfélagsins sagði að búið væri að vinna 3.000 tonn hjá frystihúsinu. �?�?etta hefur verið mjög stíf vika, en veðrið hefur sett strik í veiðarnar og áta í loðnunni. Hins vegar hefur loðnan verið góð undanfarið og við erum að byrja að frysta hrogn núna, reynum að frysta loðnu með til að byrja með en svo verðum við að skipta alveg yfir í hrognin,�? sagði Björn Brimar.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.