39 umsóknir bárust
Herj 24 IMG 6188
Fjölmargir vilja taka við starfi framkvæmdastjóra Herjólfs. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Nýverið rann út umsóknarfrestur um starf framkvæmdastjóra Herjólfs ohf. Í auglýsingunni kom fram að farið verði með umsóknir sem trúnaðarmál.

Páll Scheving, stjórnarformaður félagsins staðfesti við Eyjafréttir að 39 umsóknir hefðu borist. Hann sagði að ástæða þess að stjórnin byði upp á trúnað til umsækjenda væri sú að það gæti hvatt fleiri áhugasama einstaklinga í góðum stöðum til að sækja um starfið. Hann segir jafnframt að umsóknarferlið sé nú í fullum gangi og niðurstöðu sé að vænta í vikunni.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.