3ja ára stúlka hætt komin í sundlauginni
�?riggja ára gömul stúlka var hætt komin í sundlaug Vestmannaeyja um eittleytið í dag. Stúlkan var eina og hálfa mínútu í kafi áður en henni var komið á sundlaugarbakkann og endurlífgunartilraunir hófust. Arnsteinn Ingi Jóhannesson, forstöðumaður laugarinnar, segir í samtali við Vísi að björgunarafrek hafi verið unnið.
Að sögn forstöðumannsins er verið að fara yfir málin í þessum töluðu orðum og öryggismyndavélar skoðaðar. Við fyrstu sýn virðist sem stúlkan, sem var með föður sínum í lauginni, hafi losað sig við kúta sína og farið ofan í vatnið í leiklaug á útisvæði.
Arnsteinn segir að sundlaugargestur hafi brugðist fyrst við og dregið stúlkuna upp úr vatninu. Á sama tíma hafi starfsmaður innanhúss verið búinn að átta sig á vandamálinu, látið sundlaugarvörð í búri utandyra vita sem hafi borið að á sama tíma. Endurlífgunartilraunir hófust um leið og var mikil hagur í því að sá sem þar fóru fremst í flokki menn sem vissu nákvæmlega hvað þeir voru að gera. Var meðal annars um að ræða lögreglumann á Selfossi sem ættaður er úr Vestmannaeyjum auk starfsmanna á Herjólfi sem vel kann til verka við endurlífgun.
�?á segir Arnsteinn að lögreglu og sjúkrabifreið hafi borið að innan fimm mínútna. Viðbrögð hafi verið til fyrirmyndar á alla kanta.
�??Viðbrögð alls staðar eftir að þetta uppgötvast eru fumlaus.�??
�??Hún byrjaði mjög fljótlega að kasta upp vatni og gráta,�?? segir Arnsteinn um hvernig endurlífungartilraunir hafi gengið. Ekki hafi verið sérstaklega margir í lauginni í dag enda sólarlaust á Heimaey. Fólki hafi samt eðlilega verið brugðið.
�??Drukknun er auðvitað alltaf alvarlegt mál en fólk verður enn skelkaðra þegar um barn er að ræða,�?? segir Arnsteinn.
Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum var stúlkan flutt á sjúkrahús bæjarins og í kjölfarið send til skoðunar í Reykjavík.
Arnsteinn Ingi er afar ánægður með hvernig til tókst og segir hafa sýnt sig að öryggiseftirlit í sundlauginni í Vestmannaeyjum virki. Hann segir gesti og starfsfólk sitt hafa unnið björgunarafrek við aðstæðurnar sem sköpuðust í lauginni í dag.
visir.is

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.