5 ára telpu bjargað í sundlauginni á Hellu

Sundlaugargestum og starfsfólki sundlaugarinnar á Hellu tókst að bjarga lítilli telpu sem fannst meðvitundarlaus á botni sundlaugarinnar í dag. Lögreglan þakkar það snarræði og réttum viðbrögðum starfsfólksins að það tókst að endurlífga stúlkuna. Stúlkan er á fimmta aldursári. Sundlaugargestur tók eftir því að hún lá á botni laugarinnar og kom henni upp úr. Starfsfólk sundlaugarinnar kom strax út og hóf endurlífgun með því að blása í hana og hnoða. Bar það árangur og var stúlkan komin til meðvitundar áður en sjúkralið og lögregla kom á vettvang um klukkan fjögur.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.