50 ára sögu Íþróttamiðstöðvarinnar fagnað
Margt var um manninn á afmælisfögnuðinum í morgun

Fimmtíu ára sögu Íþróttamiðstöðvar og sundhallar Vestmannaeyja var fagnað með afmælisathöfn í Íþróttamiðstöðinni í morgun.

Við athöfnina fluttu ávörp Hákon Helgi Bjarnason, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja, Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Páll Zóphóníasson, fyrrverandi bæjarstjóri og bæjartæknifræðingur. Að því loknu fór fram pottaspjall með bæjarfulltrúum. Gestum var boðið upp á köku, kaffi og djús og frítt var í sund í tilefni tímamótanna.

Með fréttinni fylgja myndir sem Óskar Pétur Friðriksson tók frá afmælisathöfninni í dag.

Í myndagallerý eru einnig myndir frá Óskari sem teknar voru í Íþróttamiðstöðinni, 1977.

Nýjustu fréttir

Elísa Viðarsdóttir leggur skóna á hilluna
Íþróttamaður mánaðarins – Milena Mihaela Patru
Herjólfur III tilbúinn til afleysinga
Sigur hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Póllandi
Freyja flutti búnað fyrir radarhýsi til Eyja
Það á að hrósa því sem vel er gert
Hádegismatur með fjölskyldunni forréttindi 
Stærsti kosturinn að geta búið í Eyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.