Fara út og spila fyrir ÍBV og bara njóta

Eyjamenn eru eðlilega vonsviknir eftir slæma útreið í evrópuleiknum á Hásteinsvelli í gær. „Þetta er of stórt. Þetta er ekki svona mikill munur á þessum liðum. Ég talaði við nokkra í liðinu þeirra fyrir leik og þeir voru skíthræddir að koma hingað. Við ákváðum það að mæta þeim hérna í byrjun og pressa vel á þeim,”  sagði Gunnar Heiðar í samtali við fotbolti.net að leik loknum í gær.

Gunnar þekkir vel til norska boltans eftir að hafa spilað þar 2007 – 2008 með Vålerenga I.F. og svo aftur með Fredrikstad FK 2010-2011. Aðspurður um möguleika ÍBV í seinni viðureign liðanna sagði hann að mikilvægast væri bara að njóta. „Þessi leikur er kannski einn stærsti leikur sem 80% af þessum peyjum er að fara að spila á ævinni. Þannig við eigum bara að fara út og njóta þess og leggja allt í þetta, spila fyrir ÍBV og bara njóta.”

Síðari leikur liðanna fer fram fimmtudaginn 19. júlí kl 17:00 að Íslenskum tíma.

“ÍBV hefur gert góðan díl varðandi hótelgistingu fyrir áhugasama að fara á teppalagaðan völl Sarpsborgar sem er tæpri klst frá Osló. Knattspyrnuráð gerði tilraun til að setja saman hópferð en vegna mikillar eftirspurnar farþega á flugleiðinni Kef-Osló, var ekki unnt að bóka fyrir hópa,” segir í tilkynningu frá ÍBV sem hvetur fólk og vinahópa eindregið til að gera sér góða ferð, taka millilendingu og skella sér á fimmtudegi til Sarpsborgar og taka þar góða helgi.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.