Mars Aglowsamvera í kvöld

Mars Aglow samveran verður í kvöld  5.  mars  kl. 19.30 í safnaðarheimili Landkirkju. Því miður féll febrúarfundurinn niður vegna veðurs – rauð viðvörun um allt land. Við stefnum að því að hafa mars fundinn á svipuðum nótum og febrúarfundurinn átti að vera.      Við munum eiga gott samfélag saman. Byrjum með hressingu,  syngum saman  og  heyrum uppörvandi boðskap. Lilja Óskarsdóttir mun tala til okkar  og verður áhugavert að heyra í henni. Lilja er kennari og hjúkrunarfræðinur og hefur starfað víða m.a. verið kristniboði í Afríku.  Lilja ætlar að tala um opinn himinn.

Fyrir því læt ég ekki hugfallast. Jafnvel þótt minn ytri maður hrörni þá endurnýjast dag frá degi minn innri maður. Erfiðleikar mínir eru skammvinnir og léttbærir í samanburði við hina eilífu dýrð sem yfirgnæfir allt. Ég horfi ekki á hið sýnilega heldur hið ósýnilega. Hið sýnilega er stundlegt en hið ósýnilega eilíft. 2. Korintubréf 4.16 – 18

Núna um helgina var útsending á netinu frá samkomum víða um heiminn í 25 tíma og var áhugavert að heyra frá hinum kristnu frá öllum heimsálfum. Umfjöllunin um hina ofsóttu kirkju var áhugaverður og gaman að sjá og heyra efni frá öllum heimsálfum. Hægt er skoða efnið á gather25.com og gather25  á You tube.

Allar konur velkomnar á í kvöld  og  veðrið er gott.

Næstu Aglow fundir;  5. mars, 2. apríl og 7. maí 2025

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjabær áfrýjar sýknudómi vegna vatnslagnarinnar
Frá Portúgal til Vestmannaeyja
„Við erum orðin skuldlaus“
Vinnslustöðin styrkir stöðu sína í Portúgal
Herjólfur aftur í fulla áætlun á morgun
Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.