Sjötíu keppendur í 16 flokkum
Meistarar GV 2025, Örlygur Helgi Grímsson og Sóley Óskarsdóttir.

Meistaramót GV fór fram í nýliðinni viku. 70 keppendur voru skráðir til leiks í 16 flokkum, þarf af 11 í meistaraflokki karla og 5 í meistaraflokki kvenna. Veðrið lék við keppendur alla 4 keppnisdagana þó að stundum hafi verið vindasamt. Örlygur Helgi Grímsson, 15 faldur klúbbmeistari GV hóf mótið best allra og kom í hús á 64 höggum og nýju mótsmeti á fyrsta hring. Lárus Garðar Long hóf mótið einnig vel en hann lék fyrsta hring á 67 höggum. Besta hring á öðrum keppnisdegi átti Sigurbergur Sveinsson er hann lék á 66 höggum. Ölli setti svo í fluggírinn á þriðja keppnisdegi þegar hann fékk 7 fugla og 11 pör og bætti mótsmetið sitt enn á ný með hring upp á 63 högg. Sigurinn var því aldrei í hættu hjá Ölla sem endaði mótið á nýju mótsmeti, 12 undir pari og er hann klúbbmeistari GV í 16. sinn.

Efstu þrjú sætin í meistaraflokki karla voru eftirfarandi:

  1. Örlygur Helgi Grímsson, -12 (64, 71, 63, 70)

  2. Daníel Ingi Sigurjónsson, -2 (74, 67, 68, 69)

  3. Sigurbergur Sveinsson, +2 (70, 66, 72, 72)

Í meistaraflokki kvenna hóf Sóley Óskarsdóttir titilvörn sína af krafti með hring upp á 81 högg. Eftir fyrsta dag var hún með 10 högga forystu yfir Söru Jóhannsdóttur en bætti svo í með tvo hringi upp á 79 högg. Sigríður Lára Garðarsdóttir spilaði einnig gott golf í mótinu og bætti sig dag frá degi. Hún átti besta hring kvenna á lokahringnum á 81 höggi. Sóley er án efa efnilegasti kvenkylfingur sem við höfum átt lengi en hún er nú tvöfaldur klúbbmeistari GV aðeins 16 ára gömul.

Efstu þrjú sætin í meistaraflokki kvenna voru eftirfarandi:

  1. Sóley Óskarsdóttir, +49 (81, 79, 79, 90)

  2. Sigríður Lára Garðarsdóttir, +69 (94, 88, 86, 81)

  3. Katrín Harðardóttir, +84 (94, 88, 86, 81)

Úrslit í öðrum flokkum voru eftirfarandi:

1. flokkur karla
  1. Kristgeir Orri Grétarsson, +14

  2. Tómas Aron Kjartansson, +19

  3. Heimir Halldór Sigurjónsson, +26

1. flokkur kvenna
  1. Eva Aðalsteinsdóttir, +98

  2. Elsa Valgeirsdóttir, +132

  3. Harpa Gísladóttir, +158

  4. 2. flokkur karla

  1. Björn Kristjánsson, +47

  2. Helgi Bragason, +47

  3. Devon Már Griffin, +61

2. flokkur karla
  1. Anna Rós Hallgrímsdóttir, 81 punktur

  2. Una Þóra Ingimarsdóttir, 64 punktar

  3. Laufey Grétarsdóttir, 59 punktar

3. flokkur karla
  1. Gunnar Páll Hálfdánsson, +84

  2. Tryggvi Kristinn Ólafsson, +93

  3. Atli Már Magnússon, +93

4. flokkur karla
  1. Aron Gunnar Einarsson, 67 punktar

  2. Bjarni Ólafur Marinósson, 67 punktar

  3. Friðrik Óskar Egilsson, 56 punktar

50+ karlar
  1. Júlíus Hallgrímsson, +3

  2. Albert Sævarsson, +31

  3. Guðjón Grétarsson, +45

65+ karlar
  1. Þórður Halldór Hallgrímsson, +23

  2. Sigurjón Pálsson, +42

  3. Sigurjón Óskarsson, +49

50+ konur
  1. Katrín Harðardóttir, +43

  2. Elsa Valgeirsdóttir, +67

  3. Harpa Gísladóttir, +82

Upplýsingar frá GV.

Nýjustu fréttir

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins er í dag
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Gleðilegan kjördag
Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.