Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Feðgarnir Ragnar og Liam í Elliðaey. Ragnar segir vopnin hafa verið óhlaðin og son sinn hvorki hafa notað né meðhöndlað skotvopn við veiðarnar.

Ragnar Þór Jóhannsson í Vestmannaeyjum var tilkynntur til barnaverndar eftir að mynd birtist af honum og átta ára syni hans, Liam, á veiðum í Elliðaey. Á myndinni halda feðgarnir á byssum en Ragnar segir vopnin hafa verið óhlaðin og son sinn hvorki hafa notað né meðhöndlað skotvopn við veiðarnar.

Ragnar vakti sjálfur athygli á málinu í færslu á Facebook í gær og ræddi það síðan í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann segist undrandi á því að mynd af feðgum saman á veiðum hafi orðið tilefni til tveggja tilkynninga til barnaverndar.

„Ég á ekki til orð yfir hvað mér finnst þetta orðið galið. Ég var tilkynntur til barnaverndar vegna myndar af mér og syni mínum úti í Elliðaey við veiðar. Þar stilltum við okkur upp fyrir mynd á meðan við erum í göngu um eyjuna og við erum með byssu. Já, ég fer með son minn á veiðar. Og já, ég geri það með stolti,“ skrifaði Ragnar.

Veiðarnar samverustund feðganna

Ragnar segir veiðar og útiveru hafa verið hluta af sínu uppeldi og að hann vilji miðla þeirri reynslu áfram til barna sinna. Liam hafi verið aðeins 22 mánaða þegar hann fór fyrst með föður sínum á veiðar og sé nú átta ára. Ragnar hefur einnig tekið yngri dætur sínar með.

Í viðtalinu á Bylgjunni lagði hann áherslu á að börnin væru ekki sjálf að veiða eða skjóta heldur fengju að fylgja með og kynnast því sem veiðunum fylgir.

„Það er margt slæmt í þessum heimi, en ekki að vera úti í náttúrunni með pabba sínum í veiði. Þó að barnið sjálft sé ekki að veiða eða skjóta má það vera með og upplifa ákveðna hluti í þessu ferli. Þetta er samverustund fyrir okkur,“ sagði Ragnar.

Hann segist meðal annars vilja kenna börnum sínum hvaðan maturinn kemur, virðingu fyrir náttúrunni og að það þurfi að hafa fyrir hlutunum. „Maturinn kemur ekki tilbúinn í kjötborðinu í Hagkaup,“ sagði hann.

Tvær tilkynningar bárust

Að sögn Ragnars birtist myndin fyrst 6. ágúst og barst tilkynning til barnaverndar sama dag. Önnur tilkynning barst nokkrum dögum síðar. Eiginkona hans fékk símtal vegna málsins og þau voru boðuð til viðtals. Ragnar segist ekki vita hverjir tilkynntu og hafi engan áhuga á að komast að því. „Ég þarf ekkert að vita það,“ sagði hann.

Ragnar tekur jafnframt skýrt fram að hann hafi ekkert út á barnavernd að setja og segir samskiptin þar hafa verið góð. Óskað hafi verið eftir skýringum á myndinni og aðstæðum þegar hún var tekin. „Það besta sem ég fékk úr fundinum var að ég gerði ekkert af mér,“ sagði Ragnar og kvaðst hafa fengið þau svör að ekki hefði verið um brot á vopnalögum að ræða.

Ragnar segir að Liam hafi ekki notað skotvopn við veiðarnar og að byssurnar hafi verið óhlaðnar þegar myndin var tekin.

„Forræðishyggjan orðin alveg galin“

Ragnar gagnrýnir það sem hann telur aukna forræðishyggju í samfélaginu og segir fólk orðið of fljótt að skipta sér af uppeldi annarra. Honum finnist óþægilegt að hafa verið tilkynntur til barnaverndar vegna málsins, þótt hann hafi eingöngu fengið góð viðbrögð þaðan.

Hann segist eiga sambærilegar myndir af sjálfum sér með föður sínum og afa og hafi litið á myndina úr Elliðaey sem fallega mynd af sér og syni sínum við iðju sem hafi fylgt fjölskyldunni og samfélaginu lengi.

Í Facebook-færslunni segir Ragnar markmið sitt vera að ala son sinn upp þannig að hann kunni að bjarga sér, vinna, takast á við mótlæti og bera ábyrgð á sjálfum sér. Jafnframt vilji hann kenna honum virðingu fyrir náttúrunni, veiðinni og því lífi sem tekið er.

„Ég ætla ekki að ala son minn upp í þeirri trú að heimurinn eigi alltaf að vera mjúkur, þægilegur og hættulaus. Lífið er það ekki,“ skrifaði Ragnar.

Mikill stuðningur á Facebook

Viðbrögð við færslu Ragnars hafa verið mikil og langflest honum til stuðnings. Fjöldi fólks hefur lýst yfir stuðningi við feðgana og margir veiðimenn í Vestmannaeyjum hafa birt eigin myndir af sér með börnum sínum við veiðar.

Margir þeirra sem tjá sig segja ekkert athugavert við að börn fari með foreldrum sínum á veiðar og leggja áherslu á að þar geti þau lært um náttúruna, veiðar og ábyrga umgengni við skotvopn.

„Ég sé ekkert á þessari mynd sem á erindi til Barnaverndar,“ segir einn þeirra sem tjá sig og telur þvert á móti jákvætt að Ragnar taki son sinn með sér og kenni honum rétta umgengni við skotvopn.

Aðrir rifja upp eigið uppeldi og segja algengt hafa verið að börn færu ung með foreldrum sínum á veiðar. Margir gagnrýna jafnframt harðlega að myndin hafi orðið tilefni til tilkynningar.

Innan um stuðningsyfirlýsingarnar er þó einnig spurt hvernig barnavernd hafi brugðist við og hvaða reglur og viðmið gildi þegar börn eru viðstödd veiðar þar sem skotvopn eru notuð.

Ragnar segist ætla að halda sínu striki. „Ég ætla að halda áfram að ala upp sterkan, góðan og ábyrgan strák sem kann að bjarga sér í þessum heimi. Og fyrir það biðst ég nákvæmlega engrar afsökunar.“

 

Nýjustu fréttir

Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.