80 ára afmælishátíð Verðandi 29. desember

Laugardaginn 29. desember næstkomandi verður haldin glæsileg Gala veisla, afmælishátíð Verðanda, í tilefni af 80 ára afmæli félagsins.

Hátíðin er haldin í Höllinni og að sjálfsögðu er vel í lagt í skemmtun, mat og drykk.  Talað er um veislu ársins, þú vilt ekki missa af henni.

Veislustjóri verður Jarl Sigurgeirsson og sérstakur gestur verður hinn eini sanni Gísli Einarsson fréttamaður af RUV.  Unnar Gísli Sigurmundsson, eða Júníus Meyvant mun koma fram og flytja mörg af sínum bestu lögum, ásamt því að segja nokkrar vel valdar sögur, en þessi mikli listamaður er ekki síðri uppistandari en söngvari, sannkallaður listamaður.  Þá munu frábærar söngkonur koma fram, Eyjadísirnar Silja Elsabet Brynjarsdóttir og Sara Renee Griffin, ásamt Stuðlabandinu, sem mun svo halda uppi fjöri fram á morgun.  Þetta ásamt ýmsu öðru verður boðið upp á, sem ekki er tímabært að kynna strax.

Tekið verður á móti veislugestum með fordrykk og eðalsmakki að hætti Hallarinnar og Einsa kalda og síðan boðið upp á glæsilegan 3ja rétta matseðil frá Einsa kalda, ásamt sérvöldu borðvíni, sem þeir félagar Óskar Þór og Gylfi sáu um að velja.

Það er því rík ástæða til að taka þetta kvöld frá og gleðjast með okkur þetta kvöld í Höllinni.

Verði verður stillt í hóf fyrir þessa glæsilegu veislu og verður auglýst á næstu dögum.

Borðapantanir eru hjá Óskari Þór (696-5008) , Gylfa Viðari (899-5805), Viðari Hjálmars (897-5413) og Elínu Rós (693-3801).  Tryggðu þér borð í tíma.

F.h. Verðanda
Skemmtinefndin

Nýjustu fréttir

ÍBV með bakið upp við vegg eftir tap gegn Val
Eyjarnar landa í Grindavík
Sterk uppbygging og skýr framtíðarsýn
Skortur á félagslegum tengslum er dauðans alvara
Síðasta Aglow samvera vetrarins
Landeyjahöfn orðin fær á háflóði
Heimsklassa matreiðslumeistarar frá Íslandi á MATEY
Úrslitaeinvígið: Mæta Val á heimavelli
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.