Endurvekja skráningar í bakvarðarsveit
Hraunbúðir og Kirkjugerði. Hér neðst á myndinni má sjá umrætt svæði við Kirkjugerði.
Hjúkrunar-og dvalarheimilið Hraunbúðir auglýstu fyrir hálfu ári síðan í fyrstu bylgju Covid 19 eftir einstaklingum til að skrá sig í bakvarðarsveit fari svo að brottfall verði í hópi starfsmanna vegna sóttkvíar eða einangrunar. Sem betur fer höfum við ekki þurft á því að halda að kalla út fólk því við höfum sloppið vel, hingað til segir í tilkynningu frá stofnuninni.
Okkur er þó brugðið við fréttir helgarinnar um hópsmit á stofnunum sem viðkvæmir einstaklingar dvelja á. Við vitum að lítið þarf út af að bregða til að veiran læði sér á eyjuna okkar og viljum endurvekja skráningar í okkar eigin bakvarðarsveit. Við leitum að heilsuhraustum einstaklingum sem gætu aðstoðað við umönnunar, eldhús og ræstingarstörf. Sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og þeir sem reynslu hafa af störfum við aðhlynningu eru sérstaklega hvattir til að skrá sig. Laun yrðu greidd skv kjarasamningum þeirra starfsstétta sem um ræðir. Þeir sem hafa áhuga og möguleika á að ganga til liðs við okkur sendið nafn, símanúmer og upplýsingar um hvaða starfi þeir gætu sinnt ef á þyrfti að halda, á hraunbudir@vestmannaeyjar.is eða í síma 860 1030.Ef þörf verður á að kalla eftir aðstoð mega þeir sem skrá sig eiga von á símtali.

Nýjustu fréttir

Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Ræða stöðu ferðaþjónustunnar við þingmenn Suðurkjördæmis
Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.