Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE komu til Vestmannaeyja seint á mánudagskvöld með fullfermi. Frá þessu er greint á heimasíður síldarvinnslunnar. Veiðiferð skipanna hafði tekið einn og hálfan sólarhring. Landað var í gær en að löndun lokinni fara áhafnirnar í heilsufarsskoðun og verður ekki á ný haldið til veiða fyrr en á fimmtudagskvöld. Bæði skipin lönduðu áður fullfermi síðastliðinn sunnudag þannig að vart verður kvartað undan veiðinni. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að það hafi verið sannkölluð mokveiði að undanförnu. „Hér um borð eru menn kátir og ánægðir. Vertíðin hefur verið fín og sem betur fer hafa menn sloppið við stórviðri og brælur þannig að allt hefur gengið eins og best verður á kosið. Þessi túr var í einn og hálfan sólarhring og þar af fór megnið af tímanum í stím. Við byrjuðum á Selvogsbankanum og þar var sannkölluð mokveiði í þorski. Síðan kom að hrygningarstoppi og svæðinu þar var lokað. Þá var keyrt austur á Síðugrunn og þar fékkst ýsa. Við fylltum skipið þar. Sannleikurinn er sá að menn þurfa að gæta sín að fá ekki alltof mikið í trollið – þetta hefur verið aðgæsluveiði,“ segir Birgir Þór.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, segir að í túrnum hafi þeir fyllt skipið í sex holum. „Við byrjuðum vestan við Surt, á 70 faðma blettunum, og tókum þar þrjú hol. Þar var bullandi þorskveiði. Síðan var svæðinu lokað og þá var siglt austur á Síðugrunn. Þar voru tekin þrjú hol og skipið fyllt. Á Síðugrunni fékkst ýsa og svolítill ufsi. Við vorum allan tímann að reyna að fá ekki of stór hol þannig að það er um hörkufiskirí að ræða og veiðiferðirnar að undanförnu hafa ekki náð tveimur sólarhringum. Nú kemur smá hlé vegna heilsufarsskoðunar áhafnarinnar og það er bara vel þegið,“ segir Jón.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.