Safnahelgi – Mál, menning og handbolti
Eldheimar

Dagskrá Safnahelgar nær hápunkti í dag og hefst með bókakynningu í Safnahúsi kl. 12.00. Þær Arna Björgvinsdóttir og Yrsa Þöll Gylfadóttir lesa úr nýjum bókum sínum í seríunni Bekkurinn minn. Bókabeitan kynnir ýmsar barnabækur.

Klukkan 13.00 er yfirgripsmikið málþing um athafnamanninn Gísla J. Johnsen í Ráðhúsinu. Þátttakendur eru Arnar Sigurmundsson, Helgi Bernódusson, Ívar Atlason, Kári Bjarnason, Ingi Tómas Björnsson og Pétur Ármannsson. Í lok málþingsins verður gengið að Breiðabliki þar sem Pétur og húsráðendur munu fjalla stuttlega um sögu hússins og endurbætur.

Klukkan  14:00 mætir ÍBV Donbas frá Úkraínu í Evrópubikarkeppninni í handbolta karla. Klukkan 15:00 sýnir Leikfélag Vestmannaeyja. Ávaxtakörfuna sem fengið hefur mjög lofsamlega dóma.

Kl. 20:30 í Eldheimum mæta rithöfundarnir Einar Kárason sem sendir í ár frá sér bókina,  Opið haf og Yrsa Sigurðardóttir sem er á kunnulegum slóðum í bókinni Gættu þinna handa. Svo verður óvænt tónlistaratriði.

Opnunartími safna:
Eldheimar 13:30-16:30 alla daga. Solander sýningin á opnunartíma.
Sagnheimar 13-16 á laugardag. Frítt inn. Bingó fyrir börnin.
Bókasafn 11-14 á laugardag.
Sjóminjasafn Þórðar Rafns 13-16 lau og sun. Frítt inn.

Gestastofa Sea Life Trust 11-15 fös, lau og sun. Heimafólk fær 15% afslátt af árskortum fyrir 2023. Á bakvið tjöldin ferðir á 50% afslætti alla helgina. Ratleikur, föndurstöð og spil, lifandi tónlist með Alberti Tórshamar, myndlistasýning Gunnars Júl.

Nýjustu fréttir

Steinunn Sigurðardóttir les úr Veislu þrjú á Safnahelgi
Lengri hafnargarðar myndu auka dýpkunarþörf
Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.