Skipalyftan ein stærsta Milwaukee verslun á Norðurlöndum

Það verður glatt á hjalla í Skipalyftunni í dag þegar Milwakee dagurinn fer fram. Kynning verður á nýjum vörum og hægt að gera hagstæð kaup á hinum ýmsu tilboðum sem verða í boði. Benedikt sölumaður hjá Verkfærasölunni sagði í samtali við Eyjafréttir að þeir væru að hefja hringferð um landið í Vestmannaeyjum. “Það er mikilvægt fyrir okkur að koma til Eyja og sinna okkar viðskiptavinum sem þess á milli eru í góðum höndum hjá Ómari og félögum hér í Skipalyftunni. Við eigum mikið af traustum viðskiptavinum í Eyjum. Eyjamenn vilja hafa góð tæki og það er ekki að ástæðu lausu að Skipalyftan er ein stærsta Milwakee verslun á Norðurlöndum í hillumetrum talið.” Benedikt sagði þá félaga ætla að standa vaktina til fjögur í dag annars væri alltaf hægt að nálgast þeirra vörur í Skipalyftunni.

Nýjustu fréttir

Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.