Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV og liðið allt hafði ástæðu til að fagna eftir 2:2 jafntefli við HK í Kópavogi í Bestu deild karla í gærkvöldi. Eyjamenn lentu 2:0 undir en gáfust ekki upp og náðu að jafna undir lok uppbótartíma. Gott innlegg í baráttuna framundan en á brekkan er brött.
Eyjamenn í fallsæti með 18 stig en stutt í næstu þrjú lið. Vandamálið hefur verið að skora mörk en vonandi losnaði um þann hnút í gær. Næsta prófraun er KR heima á laugardaginn. Sigur í þeim leik væri gott veganesti inn úrslitakeppnina sem þá er framundan.
„Það eru 18 stig í pottinum og við vitum það að þessi leikur í dag nærir okkur eins og sigur. Við förum brattir inn í næsta leik, við erum að fá menn úr meiðslum og það eru nýir menn að komast meira inn í þetta. Breiddin er því meiri hjá okkur og við förum með rosalega orku inn í lokakaflann og ætlum okkur að halda okkur uppi,” sagði Hermann við mbl. eftir leikinn í gær. Telur hann ÍBV eiga góða möguleika gegn KR.
Myndina tók Sigfús Gunnar í leik ÍBV og HK á Hásteinsvelli fyrr í sumar.
L | Mörk | Stig | |
Víkingur R. | 21 | 62:18 | 56 |
Valur | 21 | 49:24 | 42 |
Breiðablik | 21 | 44:34 | 38 |
Stjarnan | 21 | 42:25 | 31 |
FH | 20 | 39:41 | 31 |
KR | 21 | 27:34 | 31 |
HK | 21 | 36:44 | 25 |
KA | 20 | 27:38 | 25 |
Fylkir | 21 | 28:44 | 20 |
Fram | 21 | 30:44 | 19 |
ÍBV | 21 | 22:41 | 18 |
Keflavík | 21 | 20:39 | 12 |
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst