Eyjamenn sóttu ekki gull í greipar Valsmanna í bikarúrslitaleiknum í gær. Úrslitin 43:31 fyrir Val sem fagnaði bikarmeistaratitlinum þetta árið. Í hálfleik var staðan 17:15 fyrir Val og útlitið ekki slæmt fyrir ÍBV. Í seinni hálfleik gekk allt upp hjá Val og svör vantaði hjá ÍBV. Því fór sem fór.
Í viðtali við handbolti.is sagði Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV úrslitin vera vonbrigði því ÍBV-liðið hafi ætlað sér meira. „Ég er engu að síður stoltur af mínum mönnum. Þeir verða ekki sakaðir um að hafa ekki lagt líf og sál í leikinn. Stundum gengur allt upp, stundum ekki. Svona er lífið. Því miður gekk margt ekki upp hjá okkur í síðari hálfleik í dag.
Til viðbótar er vafalaust margt sem við í þjálfarateyminu verðum að skoða og snýr að okkur og hvað við hefðum getað gert betur,“ sagði Magnús Stefánsson þjálfari karlaliðs ÍBV í samtali við handbolta.is rétt eftir að úrslitaleiknum lauk í Laugardalshöll.
Valsmenn voru frábærir í leiknum og eru vel að titlinum komnir.
ÍBV þekkir tilfinninguna að vinna titla. Koma tímar koma ráð.
Mynd Sigfús Gunnar.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst