Hefðum getað gert betur

Eyjamenn sóttu ekki gull í greipar Valsmanna í bikarúrslitaleiknum í gær. Úrslitin 43:31 fyrir Val sem fagnaði bikarmeistaratitlinum þetta árið. Í hálfleik var staðan 17:15 fyr­ir Val og útlitið ekki slæmt fyrir ÍBV. Í seinni hálfleik gekk allt upp hjá Val og svör vantaði hjá ÍBV. Því fór sem fór.

Í viðtali við handbolti.is sagði Magnús Stefánsson, þjálfari ÍBV úrslitin vera vonbrigði því ÍBV-liðið hafi ætlað sér meira. „Ég er engu að síður stoltur af mínum mönnum. Þeir verða ekki sakaðir um að hafa ekki lagt líf og sál í leikinn. Stundum gengur allt upp, stundum ekki. Svona er lífið. Því miður gekk margt ekki upp hjá okkur í síðari hálfleik í dag.

Til viðbótar er vafalaust margt sem við í þjálfarateyminu verðum að skoða og snýr að okkur og hvað við hefðum getað gert betur,“ sagði Magnús Stefánsson þjálfari karlaliðs ÍBV í samtali við handbolta.is rétt eftir að úrslitaleiknum lauk í Laugardalshöll.

Valsmenn voru frábærir í leiknum og eru vel að titlinum komnir.

ÍBV þekkir tilfinninguna að vinna titla. Koma tímar koma ráð.

Mynd Sigfús Gunnar.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.