Nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunnar er ekki í öfundsverðri stöðu. Stofnunin hefur síðustu ár safnað miklum skuldum sem erfitt verður að vinda ofan af. 2 af 4 heilsugæslulæknum eru hættir. Sá þriðji bætist við í sumar. Staða skurðlæknis er komin niður í 25% starf og engin svæfingalæknir verið hér í þó nokkurn tíma. Þá er lyflæknirinn hugsanlega á leið í stjórnsýslustarf hjá sameinaðri stofnun sem þýðir að hann mun hverfa á braut úr því starfi sem hann nú gegnir að mjög miklu leyti eða öllu. Ef þetta gengur eftir þá er 1 læknir eftir á sjúkrahúsinu í fullu starfi.
Metfjöldi er nú í sjúkraflugi milli lands og Eyja og ef ofangreint gengur eftir má búast við enn frekari aukningu þar sem sjúklingar þurfa að fara í flug með tilheyrandi kostnaði.
Eyjar.net sendu spurningar á nýráðinn forstjóra þann 9. desember varðandi málið. Enn hafa ekki borist svör en ljóst er að vandinn er mikill og verður fróðlegt að sjá hvað forstjórinn segir um framhaldið!