Fylltur kalkúnn

Kalkúnar eru að verða æ algengari á matarborðum Íslendinga og eru fjölmargir sem elda kalkún yfir hátíðirnar. Margir eru hræddir við að elda fuglinn en það er í raun og veru ekkert að hræðast. Bara finna einhverja góða uppskrift og skella sér í eldamennskuna.
Þessa uppskrift eldaði ég á síðasta ári en ég fékk þessa uppskrift úr þætti hjá Jóa Fel.

Fylltur kalkúnn

c.a 4 kíló kalkúnn. Fuglinn er látinn þyðna í 2 sólarhringa í kæli og gott er að taka fuglinn út og láta hann standa við stofuhita daginn sem hann er eldaður.
Takið innmatinn úr fuglinum og þerrið skinnið vel á fuglinum.
Skolið fuglinn að innan með vatni.

Fyllling:
150gr smjör
2 stk meðalstórir rauðlaukar
2 stk epli
200gr skinka
½ stk sellerí stöngull
50gr hakkaðar möndlur
½ stk formbrauð (án skorpu)
4 msk steinselja
1 msk timjan
2msk oregano
1 stk appelsína, börkur og safi
Salt og pipar
2 stk egg
5msk rauðvín

Smjörið er bræt á pönnu g smátt saxaður laukurinn er látinn saman við og steikjast í c.a 10 mín, eða þar til meyr. Eplin eru skorin niður í litla bita, skinkan er skorinn smátt ásamt sellerí. Brauðið er skorið í litla teninga, þá eru kryddjurtirnar saxaðar smátt niður og börkurinn af appelsínunni er rifinn mjög smátt. Þegar laukurinn er tilbúinn er þessu öllu blandað saman. Þá er vökvinn settur saman við, appelsínusafinn, rauðvínið og eggin og allt unnið vel saman.

Setjið fyllinguna inní kalkúninn, en passið að fylla hann ekki alveg þar sem fyllinginn þennst aðeins út. Setjið svo álpappír í opið og þrístið vel á.

Smjör krydd
150gr smjör
1msk Oregano
1msk Timjan
1msk Rósmarin
1 tsk pipar
½ tsk salt

Smjörið er látið bráðna við vægan hita og kryddjurtunum er blandað saman við. Hrærið saman og smyrjið yfir fuglinn áður en hann fer í ofninn og svo á c.a 20 mín fresti.

Fuglinn er settur inní 170° heitann ofninn og steiktur í 40 mín fyrir hvert kíló,( fjögur kíló eru þá c.a 2 tíma og 45 mín) síðustu 20 mínútur er hitinn hækkaður í 220° til að fá fallega húð á kjötið.
Látið fuglinn svo standa undir álpappír í c.a 10-15 mín áður en hann er skorinn.

Soð
Allur innmatur
1 stk laukur
2 stk gulrætur
2 stylkar sellerí
2 stk lárviðarlauf
Steinseljubúnnt
Salt og vel af pipar

Innmaturinn er steiktur fyrst og brúnaður vel, þá er restinn sett saman við og steikt áfram. Þá er 1 ½ L af vatni sett saman við og soðið við vægan hita í c.a 1 ½ klst. Fleytið allri fitu af ef einhver er á meðan suðan fer fram.

Sósan
500gr sveppir
½ L soð
½ L rjómi
Salt og pipar
Sósujafnari
Athugið að gott er að setja smá af kryddjurtunum sem fóru á fugllinn í sósuna til að skerpa aðeins á bragðinu.

Kartöflur
3 stk sætar bökunnar kartöflur
3 stk bökunnar kartöflur
2 msk rósmarin

Flysjið kartöflurnar og skerið niður í bita. Steikið svo kartöflurnar á pönnu og bætið rósmarin saman við. Bakið svo kartöflurnar á saman hita og fuglinn er athugið að eldunin fer eftir því hversu stórir bitarnir eru.

Epla salat
2 stk Epli
1 dl Rjómi
½ stk sellerí stilkur
Vínber
Dass Sykur

Rjóminn er létt þeyttur með sykri, eplin er skorin niður í litla bita og sett saman við rjómann. Sellerí er skorið mjög smátt og sett saman við ásamt litlum bitum af vínberum

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.