Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Gert er ráð fyrir að verklok verði um næstu mánaðamót, gangi allt samkvæmt áætlun
Framkvæmdir standa nú yfir í Íþróttamiðstöðinni og miðar verkinu vel áfram, samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ. Ljósmynd/vestmannaeyjar.is

Töluverðar framkvæmdir standa nú yfir í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og miðar verkinu vel áfram. Samkvæmt upplýsingum á vef Vestmannaeyjabæjar eru bæði tæknilegar endurbætur og breytingar á aðstöðu langt komnar og stefnt að verklokum á næstu vikum.

Uppsetning sandsía og tilheyrandi tengingar eru langt komnar og stefnt er að því að ljúka framkvæmdum um næstu mánaðamót, samkvæmt upplýsingum sem birtar eru á vef Vestmannaeyjabæjar.

Um þessar mundir er unnið að lagningu lagna að og frá síunum og áfram að dælubúnaði. Samhliða því er verið að smíða nýja rafmagnstöflu sem mun hýsa stjórnbúnað ásamt öllum nauðsynlegum tengingum við dælur og skynjara.

Verkið gengur samkvæmt áætlun og er gert ráð fyrir að pípulagningarmenn ljúki sínum verkþætti um miðjan febrúar. Að því loknu taka rafvirkjar við og ganga frá rafbúnaði og tengingum áður en verkefninu verður formlega lokið.

Auk þessara framkvæmda hefur verið útbúin ný skrifstofuaðstaða fyrir kennara, þar sem fyrri aðstaða þeirra var á svæði sem World Class er nú að stækka líkamsræktaraðstöðu sína á. Þá er afgreiðslan einnig á lokametrunum og er gert ráð fyrir að hún verði tilbúin fyrir lok næstu viku.

Nýjustu fréttir

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.