Tríkot með nýju sniði

Sögulegur viðburður á sér stað um helgina, en þá kemur Eyjastuðbandið Tríkot fram með nýju sniði í fyrsta sinn á almennum dansleik og verða þeir á Lundanum alla helgina. Mannabreytingar hafa átt sér stað innan sveitarinnar en Jóhann Ágúst Tórshamar sem plokkað hefur bassann frá upphafi hefur nú yfirgefið bandið. “ Gústi er alveg frábær bassaleikari og er mikil eftirsjá í honum” segir Sæþór Vídó söngvari Tríkots. ” Við vorum lengi að finna mann í hans stað en ég held að við höfum fundið mann sem fellur eins og flís við rass inn í bandið.” Í stað Gústa mun nú taka við bassanum Jarl Sigurgeirsson ” Jarl er alveg eðal náungi og fantafínn bassaleikara og svo skemmir ekki að hann er með gullfallega tenór rödd” segir Sæþór og glottir. Þetta er þó ekki eina breytingin sem á sér stað því Þórir Ólafsson hefur nú gengið til liðs við sveitina og spilar á hljómborð. ” Þórir er náttúrulega bara snillingur og það hefur lengi staðið til að hann gengi til liðs við okkur. Okkur fannst bara alveg tilvalið að hann gerði það núna þar sem við vorum að breyta á annað borð. Unnþór og Eddi eru svo náttúrulega á sínum stað ásamt gleðinni sem hefur einkennt bandiðog hefur frekar bætt í hana en hitt. Þannig að helgin á Lundanum, sem hefur verið okkar heimavöllur, er eitthvað sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara “, sagði Sæþór að lokum að sagiðist lofa gífulegri gleði um helgina.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.