Kostnaður við mjólkurframleiðsluna var langmestur á Íslandi árið 2007 ef miðað er við flestöll lönd í heiminum, samkvæmt Dairy Report 2008.
Í yfirliti frá norskri stofnun sem stundar rannsóknir í landbúnaðarhagfræði kemur fram að Íslendingar hafi mun dýrari framleiðslu miðað við meðalstærð á búi en aðrar þjóðir. Íslendingar hafi um 40 kýr að meðaltali og framleiðslan kosti um 187 krónur íslenskar á kílóið. Mjólkurframleiðslan í Sviss sé næstdýrust. Þar séu búin helmingi minni og kostnaðurinn um 136 krónur á kílóið af mjólkinni. Norðmenn eru í fjórða sæti yfir dýrustu framleiðsluna.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst