Þrír menn voru handteknir í Þorlákshöfn eftir hádegi í gær, sunnudag, vegna gruns um innbrot í bát sem var við bryggju í Þorlákshöfn.
Útgerðarmaður bátsins hafði átt leið niður að höfn þegar hann sá til manns um borð í bátnum. Hann fór að huga að hverju það sætti. Eitthvað fór um þann sem var um borð sem lagði á flótta en tókst ekki betur til en svo að lenti í sjónum á milli báts og bryggju. Útgerðarmanninum tókst að veiða manninn uppúr sjónum og koma honum á land.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst