„Ég verð á Café Varmó í Eyjum um hvítasunnuna, föstudag, laugardag og sunnudag,“ sagði Gylfi Ægisson, tónlistar- og myndlistarmaður. „Ég verð þar með tónleika og uppistand sem ég kalla Á frívaktinni. Þar syng ég lög eftir mig og fer með gamanmál. Tónleikarnir eru kl. 22.00 til 24.00 öll kvöldin.