Pálmi Óskarsson, veðurathugunarmaður á Stórhöfða sendi okkur yfirlit yfir veðrið í Eyjum í dag. Hann segir að mesti 10 mín. meðalvindhraði í Vestmannaeyjum í dag hafi verið á Stórhöfða, 34,3 m.s. kl.11. (N-átt).
Vestm.bær 13,0 m.s. kl.08. (NA-átt).
Surtsey 24,9 m.s. kl.12. (NNA-átt).
Mesta vindhviða í Vestmannaeyjum í dag var á Stórhöfða 46,7 m.s. kl.11.(N-átt).
Vestmannaeyjabær 37,6 m.s kl. 12 (NNA-átt)
Surtsey 33,2 m.s kl. 11 (NNA-átt)