Ekkert útkall vegna brunatjóna á síðasta ári
S.l. ár var eitt besta ár í manna minnum þar sem ekkert útkall var vegna brunatjóna.
Slökkvilið Vestmannaeyja var kallað út af neyðarlínunni 8 sinnum á árinu 2014 í flestum tilvikum var um minniháttar tjón að ræða.�?að var aðalega um óhöpp vegan flugelda, umferðaslysa,og vatnsleka og fl.
�?á heimsóttum við mörg fyrirtæki og stofnanir bæði til að kynna okkur staðhætti og einnig vorum við með eldvarnakynningu fyrir starfsfólk. �?fingar hjá liðunu voru 25 á árinu.Einnig fóru slökkviliðsmenn í verklegt próf til Grindarvíkur.�?á fóru strákarnir í læknisskoðun og þolpróf.
Slökkviliðið fékk nýjar bílaklippur á árinu. �?að voru félagasamtök hér í bæjarfélaginu sem gerðu okkur þetta kleift. �?ar skal nefna Slysavarnadeildina Eykyndil, Kíwanisklúbburinn Helgafell og Lionsklubbur Vestmannaeyja.
Einnig standa slökkviliðsmenn vaktir þegar skip frá olíufélugum með bensínfarm losa hér í Eyjum og var það í 13 skipti á árinu.Við hjá eldvarnaeftirlitinu sjáum einnig um umsagnir til sýslumanns fyrir gististaði, veitingastaði og samkomustaði þær umsagnir voru 44 á árinu, einnig voru gerðar 5 brunavarnaskýrslur fyrir stærri byggingar.
Eins og undanfarin ár tók Slökkvilið Vestmannaeyja þátt í eldvarnaviku Landssambands slökkviliðsmanna í byrjun desember. �?að heimsóttu okkur tæplega 50 grunnskólabörn og kennarar á slökkvistöðina þar var farið yfir eldvarnir á heimilum og börnin skoðuðu tæki og tól,þá voru kennarar látnir slökkva eld með eldvarnateppi. Síðan var öllum keyrt á slökkvibílum aftur í skólann.
9.jan 2015. Ragnar �?ór Baldvinsson.

Nýjustu fréttir

Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Einar Gunnarsson skólastjóri er Eyjamaður mánaðarins
Ný vísindagrein um Kveikjum neistann
Ný aðstaða eykur sveigjanleika hafnarinnar
Mikill áhugi á The Puffin Run – Um 1.300 keppendur þegar skráðir
Sala á jólasælgæti Kiwanis hefst um helgina
25 fjölmiðlar fá rekstrarstuðning
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.