Á mánudaginn kemur, þann 23. febrúar fer fram keppnin um titilinn Matreiðslumaður ársins. �?ar eigum við Eyjamenn að sjálfsögðu okkar fulltrúa. En Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumeistari á Slippnum og Mat og drykk, er einn þeirra tíu sem valdir voru áfram í undanúrslit af dómnefnd Klúbbs matreiðslumeistara.
Keppnin sem fer fram á Kolabrautinni í Hörpu á mánudaginn kemur og fer þannig fram að allir faglærðir matreiðslumenn höfðu möguleika á að senda nafnlaust eina uppskrift í keppnina ásamt mynd af réttinum. Dómnefnd valdi svo þær tíu uppskriftir sem henni þótti lofa góðu en lagðar voru áherslur áfrumleika, nýtingu á hráefni og útlit réttar.
�?eir tíu sem áfram komust eru: Ari Freyr Valdimarsson (Sjávargrillið), Atli Erlendsson (Grillið Hótel Saga), Axel Clausen (Fiskmarkaðurinn), Garðar Kári Garðarsson (Strikið), Gísli Matthías Auðunsson (Slippurinn/�??Matur og drykkur), Hrafnkell Sigríðarson (ION Hótel), Jónas Oddur Björnsson (101 Hótel), Karl Jóhann Unnarsson (Hótel Rangá), Kristófer H. Lord (Lava Bláa Lónið) og Steinn �?skar Sigurðsson (Vodafone).
Undanúrslitakeppnin fer fram eins og áður sagði á veitingastaðnum Kolabrautin í Hörpu mánudaginn 23. febrúar kl. 10.00 til 15.00. �?rslit verða tilkynnt kl. 16.00 og eru allir velkomnir að fylgjast með. �?ar verða fjórir réttir valdir til þáttöku í lokakeppni sem haldin verður í Hörpu sunnudaginn 1. mars.