Gísli Matthías keppir um titilinn Matreiðslumaður ársins
Á mánudaginn kemur, þann 23. febrúar fer fram keppnin um titilinn Matreiðslumaður ársins. �?ar eigum við Eyjamenn að sjálfsögðu okkar fulltrúa. En Gísli Matthías Auðunsson, matreiðslumeistari á Slippnum og Mat og drykk, er einn þeirra tíu sem valdir voru áfram í undanúrslit af dómnefnd Klúbbs matreiðslumeistara.
Keppnin sem fer fram á Kolabrautinni í Hörpu á mánudaginn kemur og fer þannig fram að allir faglærðir matreiðslumenn höfðu möguleika á að senda nafnlaust eina uppskrift í keppnina ásamt mynd af réttinum. Dómnefnd valdi svo þær tíu uppskriftir sem henni þótti lofa góðu en lagðar voru áherslur áfrumleika, nýtingu á hráefni og útlit réttar.
�?eir tíu sem áfram komust eru: Ari Freyr Valdimarsson (Sjávargrillið), Atli Erlendsson (Grillið Hótel Saga), Axel Clausen (Fiskmarkaðurinn), Garðar Kári Garðarsson (Strikið), Gísli Matthías Auðunsson (Slippurinn/�??Mat­ur og drykkur), Hrafnkell Sigríðarson (ION Hótel), Jónas Oddur Björnsson (101 Hótel), Karl Jóhann Unnarsson (Hótel Rangá), Kristófer H. Lord (Lava Bláa Lónið) og Steinn �?skar Sigurðsson (Vodafone).
Undanúrslitakeppnin fer fram eins og áður sagði á veitingastaðnum Kolabrautin í Hörpu mánudaginn 23. febrúar kl. 10.00 til 15.00. �?rslit verða tilkynnt kl. 16.00 og eru allir velkomnir að fylgjast með. �?ar verða fjórir réttir valdir til þáttöku í lokakeppni sem haldin verður í Hörpu sunnudaginn 1. mars.

Nýjustu fréttir

Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Ræða stöðu ferðaþjónustunnar við þingmenn Suðurkjördæmis
Val á endurskoðanda aftur til bæjarráðs
Appelsínugul viðvörun: Vara við vindhviðum yfir 40 m/s þegar börn fara í skóla
Hver er bestur, Óli prestur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.