Það er víða leitað fanga á kvikmyndahátíð sem Vestmannaeyjabær stendur fyrir dagana áttunda til tólfta maí nk. Hátíðin verður sett með móttöku í Kviku kl. 17.OO í dag, miðvikudag og stuttmyndum af Vestmannaeyjum frá upphafi síðustu aldar þegar Vestmannaeyjabær sem við þekkjum í dag er að verða til.

Á þessari fimm daga kvikmyndahátíð verður margt á boðstólnum. Dagskrá dagsins er sem hér segir:
Miðvikudaginn 8. maí 2019, kvikmyndasýning kl. 17.00 til 18:00 (athugið breyttan sýningartíma).
Vestmannaeyjabær að fæðast, lifandi myndir frá fyrri hluta 20. aldar. Arnar Sigurmundsson og Kristján Egilsson skýra það sem fyrir augu ber.
Sýndar verða stuttmyndir úr fórum Kvikmyndasafns Íslands og Safnahúss Vestmannaeyja. Elstu lifandi myndir sem vitað er um af Vestmannaeyjum og eru hinar elstu frá 1916. Eru þetta bæjarlífsmyndir, myndir af atvinnuháttum til sjávar og sveita og myndir af einstaklingum sem möguleiki er að bera kennsl á.
Þá verður sýnd stuttmynd Lofts Guðmundssonar ljósmyndara sem var kennari í Vestmannaeyjum og önnur stuttmynd sem kennd er við Kjartan Guðmundsson ljósmyndara en báðar eru frá 1924.
Sýningu lýkur klukkan 18.00 þannig að allir komist á leik ÍBV og Hauka í handboltanum. Vestmannaeyjabær býður á allar þessar sýningar í tilefni aldarafmælis kaupstaðarins.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst