Lundasumarið 2019
25. september, 2019

Lundaballið er um helgina og því rétt að gera upp lundasumarið 2019.

Þegar þetta er skrifað er pysjufjöldinn hjá Pysjueftirlitinu að detta í 8000, sem þýðir að miðað við alla þá sem ég hef séð fara með Herjólfi að morgni til með fulla kassa af pysjum án þess að fara með í vigtun, að heildartalan sé þá klárlega komin í amk 10.000 pysjur, sem þýðir að varp stofninn okkar telur amk milljón pör, en þetta er stærsta pysjuárið okkar í rúman áratug og sennilega alveg síðan 2005 og 2006, en 2006 er fyrsta árið þar sem menn fyrst urðu varir við að eitthvað mikið væri að, enda pysjan óvenju létt þá um haustið. 2007 var hún hins vegar í mjög góðu standi, en fjöldann vantaði.

Árið í ár hinsvegar, er 5. árið í röð þar sem við fáum nokkur þúsund pysjur og mér reiknast til að miðað við að bæjarpysjan sé 1% eða minna, þá sé heildar nýliðunin þessi 5 ár um 4 milljónir lunda. Haldi þetta áfram næstu árin, sem við öll vonum, þá ætla ég að vera svo bjartsýnn að spá því að lundastofninn nái hugsanlega fyrri stærð innan jafnvel 3-5 ára, en alltaf hefur verið talað um lundastofninn í Eyjum amk 8 milljónir fugla. 

Margir hafa áhyggjur af hugsanlegu inngripi umhverfisráðherra, en ég varaði einmitt við þessum aðila í grein minni frá því vor þegar lundinn settist upp.

Margir hafa einnig velt upp spurningunni, hvernig í ósköpunum Náttúrustofa Íslands fær það út að lundastofninn telji aðeins um 2 milljónir para á öllu landinu okkar (að mínu mati er hann um 30 milljónir).

Ég hef nokkrum sinnum fjallað um hlut Erps í þessum lundatölum og flestir vita í dag að hann fer hringferð 2svar yfir lundatímann og telur lundaholur á litlum svæðum og reiknar þannig út fjöldann. Það er hins vegar marg sögð staðreynd, og ég ætla að vitna í orð fuglafræðings frá því um sumarið 2007.

Menn verða alltaf að hafa það í huga að þegar vísindamaður er að óska eftir styrkjum til rannsókna, þá fást einfaldlega engir styrkir nema útlitið sé litað nógu dökkum litum. 

Persónulega tel ég að hugsanlega sé Erpur einfaldlega í einhvers konar hefndarhug gagnvart lundasamfélaginu hérna í Eyjum, enda hefur verið gert óspart grín að honum og hans vinnubrögðum á lundaböllum síðan hann kom hingað árið 2007, en það verður forvitnilega að sjá í haust hvernig hann túlkar þessa miklu aukningu á pysjum hérna í Eyjum, en ég hef rætt við aðila, bæði í Ísafjarðardjúpi, heimsótt Grímsey norður í landi (toppurinn á árinu), heyrt í ferðaþjónustuaðilum í Húsavík sem og við Papey. Allstaðar er lundanum að fjölga. 

Stærsta áhyggjuefnið hér í Eyjum er eins og áður, að lítið sést af lunda hérna í sumar og sumir hafa velt því fyrir sér hvort það geti verið, að vegna ætisskort hafi ungfuglinn okkar fært sig eitthvað annað og jafnvel komi hugsanlega við í Eyjum í ágúst á leiðinni frá landinu.

Ég er ekki sammála þessari skoðun og tel að ef svo væri, þá ætti klárlega að fjölga verulega veiddum lundum annarstaðar sem hefðu verið merktir sem pysjur hér í Eyjum, en samkv. þeim upplýsingur sem ég hef, þá veiddist aðeins 1 lundi á Íslandi, sem merktur var í Vestmannaeyjum.

Í ár voru leyfðir 8 veiðidagar, 8-15 ágúst. Að venju fór ég ekki til veiða, ekki frekar en yfirgnæfandi meirihluti af veiðimönnum í Eyjum, en þeir sem fóru veiddu, eftir því sem ég veit best, milli 6-700 lunda. Mest af þessu var veitt 15. ágúst, en þá gerði mjög hagstæða austanátt, en mér skilst að meirihlutinn af þessu hafi verið ungfugl.

Það hefur verið mjög gaman að fylgjast með öllum þeim gríðarlega fjölda af fólki sem var hérna um helgar við pysjuveiðar og það kemur mér ekkert á óvart ef stelpurnar mínar hafi bjargað um 3-400 pysjum.

En svona til gamans ein lítil, gömul pysjuveiðisaga frá mér:

Ég hef sennilega verið svona 11-12 ára gamall og staddur við bæjarbryggjuna ásamt fullt af fólki, nýkomið myrkur og allir að bíða eftir að pysjurnar fara að fljúga. Það var oft erfitt að fá kassa, en ég hafði græjað mig með víðri peysu, sem ég hnýtti fyrir að neðan og tróð svo bara pysjunum inn á mig.

Það var oft æði mikið fjör undir peysunni og ekki óvanalegt að maður var oft mikið klóraður eftir annasamt kvöld, en þetta tiltekna kvöld tóku nokkrir krakkar eftir því að pysja hafði lent uppi á mjölgeymslu Ísfélagsins, stóð þar á brúninni norðan megin og horfði yfir allt mannhafið. Sumir tóku til við að stappa og klappa til að sjá hvort hún flygi ekki niður, en ekki haggaðist hún, svo 2 ofurhugar tóku sig til og klifruðu upp ljósastaurinn austan við mjölgeymsluna og upp á þak. Við krakkarnir stilltum okkur út um allt planið til að vera tilbúin að grípa pysjuna, en ég ákvað að stilla mér upp við girðinguna við höfnina, ef henni skyldi nú takast að fljúga þangað, svo hún kæmist ekki í höfnina.

Loksins þegar hún flaug, þá fór hún fyrst niður og svo hátt upp, yfir allan krakkahópinn, rétt áður en hún kom að girðingunni þar sem ég stóð, lækkaði hún aðeins flugið, svo ég stökk upp og náði taki á löppunum á henni, náði svo betra taki og stakk henni inn á mig og labbaði ansi góður með mig í burtu.

Já, lundaballið er um helgina og ég ætla að reyna að mæta. Óska að sjálfsögðu öllum gleðilegrar skemmtunar og efast ekki um að þetta verði flott ball hjá Bjarnareyingum og munum, að lundinn mun koma til Eyja löngu eftir okkar dag í milljóna tali.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst