Það er öflug þrenning sem mætir með myndir sínar í Einarsstofu kl. 17.00 á föstudaginn. Þeir eru Halldór Sveinsson, lögregluvarðstjóri, Jói Myndó og Sigmar Pálmason betur þekktur sem Bói Pálma.
Sýningin er hluti af Safnahelgi og sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt og er sú níunda í röðinni. Halldór hefur í mörg ár tekið myndir af því sem fyrir augu hans ber og ætlar hann að gefa okkur tækifæri á að kíkja aðeins í safnið.
Bói tók ómetanlegar myndir í Heimaeyjargosinu 1973 og má þakka Jóa Listó að þær enduðu ekki í glatkistunni. Jói Myndó, er unglingurinn í hópnum og hefur á ótrúlega skömmum tíma náð að sanna sig sem athyglisverður ljósmyndari.
Fólk er beðið um að athuga breyttan tíma vegna Safnahelgar og verður sýningin klukkan 17.00 á föstudaginn en ekki á laugardag. Sýningin stendur yfir í um einn og hálfan tíma.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst