Loksins – Loksins – Lokastef Safnahelgar á sunnudaginn

Um helgina má segja að sé lokadagur Safnahelgar sem hófst þann 9. nóvember sl. og átti að ná yfir tvær helgar en stundum eru náttúruöflin að stríða okkur Eyjafólki. 

Ekki alltaf byr þegar von er á  gestum eða að við ætlum að bregða undir okkur betri fætinum. Sú var einmitt reyndin laugardaginn 9. nóvember þegar við áttum von á góðum gestum af fastalandinu. Það gerði snarvitlaust veður og fólkið komst hvorki lönd né strönd.

Þau tóku strax vel í að fresta för og ætla að mæta á sunnudaginn. Það eru þau Bjarni Harðarson, rithöfundur og bókaútgefandi, Guðjón Ragnar Jónasson rithöfundur og Guðrún Bergmann sem ætlar að fræða konur og kannski karla líka um leiðir til bættrar heilsu.

Allt hefst þetta kl: 12.00 á sunnudaginn í Einarsstofu, Safnahúsi með súpu boði Söguseturs 1627. Á eftir, kl: 12:30 í Einarsstofu skrifar Bjarni Harðarson undir samning við Sögusetur 1627 um útgáfu á Reisubók sr. Ólafs Egilssonar. Eyjasundsbikarinn.

Að því loknu, kl. 13.00 kynnir Bjarni nýjar bækur nýjar bækur hjá Sæmundarútgáfunni og hann og Guðjón Ragnar Jónasson lesa úr nýjum bókum sínum.

Það verður svo  kl. 14:30 á sama stað sem Guðrún Bergmann fjallar um nokkrar einfaldar leiðir til að bæta heilsuna og kynnir nýjustu bók sína BETRA LÍF fyrir konur á besta aldri.

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.